Ofurfyrirsætan Gisele Bünchen er hæst launaða fyrirsætan á þessu ári. Hér er hin hálaunaða Gisele í sjóðandi heitum myndaþætti fyrir Vogue Paris.
Gisele segir að hún leggi mikla vinnu í líkama sinn enda noti hún hann í vinnunni, það sé einfaldlega atvinnan hennar að líta vel út.
Fyrirsætan segist passa vel upp á skammtastærðirnar sínar og að hún stundi bardagalistir, pilates og jógaæfingar. Ef hún hefur ekki tíma til að gera þessar æfingar þá hleypur hún eða syndir. Gisele á fimm systur og segir alltaf við þær að ,,þú uppskerð eins og þú sáir.” Hún segist einnig leggi sig hart fram við það sem hún gerir, hvort sem það sé líkamsrækt eða eitthvað annað.
Gisele er hörkukroppur, því verður ekki neitað – enda segist hún leggja mikið á sig til þess að halda líkamanum í formi. Ætli hún fái ekki líka hjálp frá einkaþjálfara, kokki og næringarfræðingi? Jú ég hugsa það….
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig