Gisele situr fyrir í myndaþætti fyrir Vogue aðeins tveimur mánuðum eftir að hafa eignast sitt annað barn.
…og haltu á ketti hvað frú Brady er sjúúúklega flott!! Mario Testino tók myndirnar af Gisele sjálfur átti hann ekki til orð yfir hversu flottur kroppur fyrirsætan er.
Gisele hefur alltaf sagt að hún komi fram við líkama sinn sem musteri, borði ekki ruslfæði og það breytist heldur ekki þegar hún gengur með börnin sín. Hún borðar ekki óhollan mat og passar vel upp á línurnar ásamt því að stunda ýmsa líkamsrækt eins og Jóga og Kung Fu.
Ég held að ég láti myndirnar tala sínu máli, ég er að minnsta kosti orðlaus eftir að sjá þessar myndir af OFURfyrirsætunni (kannski er hún bara geimvera?) … eða ég veit það ekki?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig