Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen eignaðist dóttur sína Vivian Lake fyrir þremur mánuðum síðan og er strax komin í bikiníform.
Gisele og eiginmaður hennar Tom Brady skelltu sér í langþráð frí til Costa Rica en Tom er núna í fríi frá æfingum og nýtir tímann vel með fjölskyldunni þar sem mikill tími fer í keppnisferðalög þegar tímabilið í ameríska ruðningnum (NFL) er í gangi.
Gisele bar Vivian í burðarpoka framan á sér og virtist njóta þess að vera á ströndinni með fjölskyldunni og hundunum. Þau skelltu sér síðan á fjórhjól á ströndinni og Vivian var í pokanum á meðan. Tom skellti kossi á Vivian litlu og Benjamin spígsporaði í kringum þau á meðan.
Það er óhætt að segja að Gisele standi undir nafni sem OFURfyrirsæta en það er ekki hver sem er sem er nánast ekki með neitt slit og örlítinn mallakút þremur mánuðum eftir barnsburð.
Gisele er Victoria’s Secret fyrirsæta. Þessar ofurskutlur eru í formi allt árið um kring og fá aldrei frí því þær þurfa að vera tilbúnar hvenær sem er í tökur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig