Við Pjattrófur höfum haft þann sið að halda reglulega pjattpartý þar sem við skemmtum okkur og gerum vel við gestina okkar,- enda sælla að gefa en þiggja og alveg í anda Pjattsins!
Þetta haustið héldum við gleðina á Loftinu.
Við buðum skvísunum okkar upp á ljúffenga Tanqueray kokteila, þær fengu gjafapoka með naglalökkum frá Essie, ilmi frá Burberry og CK One og frábæra snyrtibuddu frá Smashbox sem innhélt tvö gloss og augabrúna-kit.
Af því við erum svo gríðarleg gáfumenni fannst okkur líka nauðsynlegt að reyna aðeins á heilasellurnar.
Við héldum því skemmtilegt SkvísQuiz og vinningarnir voru ekki af verri endanum, – Splunkunýr ilmur frá Miu Miu, töskur og body lotion, kampavínsborð Mõet Chandon á Loftinu og brúnkuvörur frá St. Tropez!
Tæplega 100 æðislegar vinkonur mættu hressar í partýið til okkar og skemmtu sér vel eins og sjá má á myndunum. Margir vilja meina að hápunktur kvöldsins hafi verið þegar hin yndislega, frábæra og dásamlega María Guðmundsdóttir tók uppistandið sitt en margir kannast við hana úr Steinda þáttunum.
Hér eru skemmtilegar myndir úr gleðinni! Hin ofur hæfileikaríka Emilía Kristín ljósmyndapjattrófa tók flestar myndirnar en Brynjar Snær á hópmyndina af okkur og nokkrar aðrar.
Við þökkum innilega fyrir okkur og erum sjúklega spenntar að halda næsta partý! Girls just wanna have fun!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.