Einu sinni þótti hrikalega villt að ganga í leðri og vera með húðflúr…
En á því herrans ári 2010 eru jafnvel stífustu húsmæður komnar með flúr og luma jafnvel á leddara í buxnahillunni – Og meira að segja Chanel hafa sett á markað einskonar upphitunar tattú fyrir þær dömur sem eru að velta þessu eitthvað fyrir sér, eða langar kannski bara að vera pínu villtar yfir eina helgi.
Ég hef hvergi séð þetta hér á klakanum og ef svo væri þá kostaði það eflaust allt, allt, allt of mikið. En þetta er yndislega kvenlegt, chic og kúl.
Hér kenna tvær dömur okkur hvernig maður á að setja þetta á sig.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.