Hún er fertug en lætur sér fátt um finnast og fer í það sem henni sýnist greinilega enda ekkert aldurstakmark á leðri.
Geri getur líka verið stolt af útliti sínu en hún, líkt og hinar kryddpíurnar, heldur sér ótrúlega vel og er í toppformi.
Hér má sjá hana spóka sig með Mel B vinkonu sinni úr sönghópnum en þær fóru saman að sjá söngleikinn um þær sjálfar í Piccadilly leikhúsinu í London. Geri tekur þetta alla leið og er meira að segja í leðurstígvélum með litla CHANEL tösku úr leðri.
Myndir þú leggja í þetta komin á fimmtugsaldur? Hví ekki?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.