Það þarf Kraft til að takast á við krabbamein. Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, boðar til vitundarvakningar um ungt fólk og krabbamein.
Félagsmenn Krafts eru krabbameinsgreindir einstaklingar á aldrinum 18 – 40 ára og aðstandendur. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á aðstæðum þessa fólks. Auk þess verður leitað til almennings að gerast mánaðarlegir styrktaraðilar til að styðja við bakið á starfseminni. Átakið hefst formlega þann 11. janúar með tónleikum á Kex þar sem fram koma Emiliana Torrini, Emmsjé Gauti, Hildur og Hjálmar.
Á morgun hefst svo vitundarvakning þar sem birtar verða athyglisverðar auglýsingar í fjölmiðlum; auglýsingar sem vekja fólk til umhugsunar um málefnið. Myndirnar eru af þjóðþekktum einstaklingum sem “bera á sér skallann” til að sýna fram á að hver sem er getur greinst með krabbamein. Myndirnar verða fyrst sýndar á Kex á tónleikunum og í kjölfarið sendar á alla fjölmiðla.
Hluti af herferð Krafts verður að perla armbönd sem á stendur „Lífið er núna“ og eru þau seld til styrktar Krafti. Leitað verður til almennings um að hjálpa okkur að perla þessi armbönd. Þann 14. janúar verður Perlað með Krafti á Kexinu milli 12 og 17 og vonast þau til að sjá sem flesta. Eins og fyrr greinir verða þessi armbönd seld til styrktar Krafti í vefverslun Krafts áwww.kraftur.org/vefverslun eða á www.lifidernuna.is og þar getur fólk einnig skráð sig sem mánaðarlega styrktraðila.
Perlað í nafni kærleikans!
Kraftur, stuðningsfélag, var stofnað árið 1999 og byggir afkomu sína alfarið á velvilja almennings og fyrirtækja. Megin ástæða þess að félagið fer út í átak sem þetta er m.a. til að styrkja fjárhagslegar stoðir þess. Helstu verkefni Krafts eru að reka faglegt stuðningsnet þar sem jafningjar styðja aðra með sömu lífsreynslu.
Félagið úthlutar einnig styrkjum úr sérstökum neyðarsjóði til ungs fólks með krabbamein til að standa straum af læknis- og lyfjakostnaði, heldur úti útivistar- og endurhæfingarhópnum FítonsKrafti og veitir einnig endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu. Það er því von okkar, sem stöndum að félaginu, að fjölmiðlar sýni átakinu áhuga og eru þeir boðnir velkomnir á tónleikana og/eða Perlað með Krafti, laugardaginn 14. janúar.
Hér má finna linkinn á tónleikana: https://www.facebook.com/events/104058780100634/ og Perlað með Krafti: https://www.facebook.com/events/240302679735415/
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.