Hin laglegi leikari George Clooney hefur sjaldan loðað lengi við einn kvenmann enda hlýtur honum að renna blóðið til skyldunnar – dreifa fegurð sinni á sem flestar fraukur.
Samkvæmt nýjustu fréttum USweekly á hann að hafa reynt stíft við Evu Longoriu meðan hann var enn með Stacy Keibler.
Þetta var í mars síðastliðnum en þau voru bæði stödd í Berlín um nokkurt skeið. Þá tók hann upp á því að hringja í Evu og senda henni sms í gríð og erg. Leikararnir hafa bæði þekkst í nokkur ár en aldrei verið neitt á milli þeirra þar til George fékk þessa hugmynd allt í einu.
Eva (38), sem var líka einhleyp í mars, á að hafa gert George það alveg ljóst að hún væri ekki að fara að deita hann meðan hann var enn í opinberu sambandi við Stacy.
Hann sagði Evu þá að það stæði til hjá honum að slíta sambandinu við Stacy en allt kom fyrir ekki. Eva með prinsippin á hreinu og þau fóru aldrei á stefnumót.
Eva Longoria er nú byrjuð með Ernesto Arguello sem leikur í þáttaröð sem hún er meðframleiðandi að en þættirnir heita Ready for love. Þokkadísin dökka er víst hæst ánægð með það samband en að sögn þeirra sem til þekkja var George löngu hættur að vera kátur í sínu sambandi þegar hann fór að reyna við Evu.
“Þau voru reyndar enn saman en höfðu ekki stundað kynlíf í marga mánuði. Stacy hefur alltaf verið mjög sjálfstæð og ákveðin kona. Hún fékk leið á þessari fjarlægð milli þeirra og hætti með George.”
Vonum nú að hann George okkar fari nú bráðum að róast og finni sér góða konu. Hálf púkó að vera endalaust eins og unglingur að flakka á milli kvenna, kominn á sextugsaldur. Sæmir ekki svona huggulegum manni. Já sei sei.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.