Það er alltaf gott að hitta á góðan gloss og þá sérstaklega ef hann er LÍKA á góðu verði.
Um daginn var ég svo heppin að finna einn sem er alveg geggjaður. Shiny – licious frá Maybelline heitir varan sem er m.a. þeim kostum gædd að vera vaxlaus blanda þannig að þú finnur ekki þessa klístruðu tilfinningu. Shiny-licious gefur geðveikislega flottann gljáa og er til í átta frísklegum og fallegum litum og það besta er… það er ávaxtalykt og bragð af þeim. Ummm….namm.
Þetta gloss er til í flestum búðum sem selja snyrtivörur og maður fer sko ekki á hausinn við að sjoppa sér eitt svona.

Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.