Svíar eru snillingar þegar kemur að garðrækt. Þau kunna svo sannarlega að njóta sumarsins og búa sér til sælureiti í görðum sínum. Þessi fallegi garðskáli hefur verið útbúin sem sólstofa þar sem eigendurnir geta notið þess að rækta blómin og jurtir og slakað vel á í þægilegum sófa þess á milli.
Stórt og mikið borð er fyrir miðju og nokkrir gamlir stólar í kring. Rauðvín í glösum og almenn huggulegheit. Litirnir í húsgögnunum, fylgihlutunum og blómunum gera þetta fallega gróðurhús skemmtilega hippalegt og um leið er gleðin í fyrirrúmi. Það er jafnvel smá Astrid Lindgren fílíngur þarna.