Á ný afstaðinni LungA hátíðinni á Seyðisfirði, kom stjórn LungA skólans saman í fyrsta skipti auk þess sem að opnað var fyrir umsóknir í fyrstu lotu LungA skólans.
“Það sem fær mig til þess að trúa á Lungaskólann er staðsetningin Seyðisfjörður. Ég get ekki ímyndað mér betri stað til þess að þroska heilbrigt sjálf og byggja upp það einstaka heldur en þá orkustöð sem fjörðurinn er. Að stilla upp skapandi hugsun fyrir það óorðna en mögulega í skel í fjallalíki með hugvekjandi perlu í botninum,” segir prófessor Guðmundur Oddur um lýðháskólann en LungA skólinn er alþjóðleg mennta stofnun sem leggur áherslu á eflingu sjálfsins í gegnum listir og sköpun.Fyrsti lista lýðháskólinn á Íslandi.
Skólinn er staðsettur á Seyðisfirði, líkt og LungA hátíðin og er byggður á sömu grunn gildum, auk þess sem hann sækir innblástur í hina rótgrónu skandinavísku lýðháskóla.
Boðið verður upp á 16 – 18 vikna prógram sem saman stendur af listasmiðjum, fyrirlestrum og ýmiskonar verkefnum þar sem nemendunum gefst tækifæri til þess að víkka sjóndeildarhringinn, eignast nýja vini og læra að leita uppi ævintýri í hversdagsleikanum.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í 4. vikna “BETA” prógram LungA skólans, sem hefst 10. mars og lýkur 4. apríl 2014, en þar fá 20 nemendur samþjappaða útgáfu af námskrá skólans auk þess að fá tækifæri til þess að taka þátt í endanlegri mótun LungA skólans.
Fyrsta önnin í fullri lengd hefst síðan 25. ágúst 2014 og opnað verður fyrir umsóknir í það seint á þessu ári, 2013.
Stjórn skólans er skipuð sex einstaklingum með breiðan bakgrunn og fjölbreytta hæfileika en hlutverk hennar er meðal annars að vera rágefandi í daglegu starfi, standa vörð um gildi skólans auk þess að móta og halda utan um stefnu stofnunarinnar. Þetta eru þau..
Dýri Jónsson (formaður)- Eigandi Hótel Öldunnar á Seyðisfirði og framkvæmdastjóri Vesturports
Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur)- Grafískur hönnuður og prófessor listaháskóla íslands,
Sigrún Halla Unnarsdóttir – Fatahönnuður og fyrrum LungA ráðs meðlimur
Nína Magnúsdóttir – Myndlistakona
Ólafur Stefánsson – Handboltamaður og heimspekingur
Margrét Pála Ólafsdóttir – Stofnandi Hjallastefnunar
Smelltu HÉR til að skoða heimasíðu skólans.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.