Hún Theódóra sendi okkur fyrirspurn og vildi vita hvar væri hægt að fá flottar ljósmyndabækur og bækur um tísku yfir höfuð:
Mér finnst alveg frábært úrval ljósmyndabóka í Iðu í Lækjargötu og get eytt ómældum tíma þar í að skoða dásamlegar ljósmyndabækur bæði klassískra tískuljósmyndara eins og Helmut Newton, Richard Avedon, Patrick Demarchelier, Peter Lindbergh, Paulo Roversi, Oliviero Toscani og Ellen von Unwerth og nýrra og ferskra ljómsyndara sem hafa unnið fyrir tímarit eins og IQ og V.
Í Iðu og Eymundsson fást líka þykkar og juicy tísku-biblíur á borð við; the Book of Fashion, In Vogue og Fashion Now (tek dæmi um þær sem ég á í bókaskápnum)
Svo má ekki gleyma “leyndarmálinu” á Bergstaðastræti 7 Bókabúð Steinars en þar er að finna allskonar ljósmyndabækur sem hvergi fást annars staðar á landinu, um hönnun, arkitektúr og margt fleira.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.