Ein vinsælasta og krúttlegasta fyrirsætan í dag er hin 18 ára gamla Georgia May Ayeesha Jagger. Hún á ekki langt að sækja fegurðina enda dóttir Mick Jagger og fyrrum ofurfyrirsætunnar Jerry Hall.
Halda mætti að Georgia væri klónuð Brigitte Bardot, svo líkar eru þær. Georgia var valin fyrirsæta ársins 2009 af British Fashion awards og er nú þegar orðin andlit Rimmel snyrtivörufyrirtækisins, Hudson jeans, Versace ofl. einnig hefur hún setið fyrir í helstu tískublöðum í heimi.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.