Hún fæddist í Rússlandi þann 17 febrúar 1982 og ólst upp í borginni Gorky (Nizhny Novgorod í dag), sem er fimmta stærsta borg Rússlands.
Þar bjó hún hjá móður sinni ásamt tveimur hálf systrum. Natalia flutti að heiman 15 ára gömul og fór í fyrirsætu akademíu þar sem hún lærði um módelstörf. Umboðsmaður kom auga á hana og sagði henni að hún ætti mikinn feril fyrir sér en hún yrði að læra ensku.
Natalia náði tökum á enskunni eftir þrjá mánuði og 17 ára flutti hún til Parísar þar sem hún skrifaði undir samning hjá Viva Models. Hún gifti sig í Frakklandi og er í dag þriggja barna móðir!
Natalia er 176 cm á hæð og hefur blá augu og ljósbrúnt hár. Hún hefur setið fyrir fyrir hjá mörgum þekktum tímaritum eins og til dæmis VOUGE þar sem hún er mikils metin. Þá hefur hún einnig setið fyrir í auglýsingum hjá m.a. Calvin Klein, Gucci og Guerlain.
Eurovision aðdáendur hafa eflaust komið auga á hana en árið 2009 var hún kynnir í keppninni sem var haldin í Moskvu. Hér að neðan eru myndir af þessari fallegu fyrirsætu…