7 dagar í jólin… Það er alltaf gaman að gleðja góða vini og okkar heittelskaða með því að gefa fallegar gjafir.
Sumar lenda samt í töluverðum vandræðum með þetta. Snúast í hringi og vita hreinlega ekkert hvað á að gefa á meðan aðrar konur eru með hlutina á hreinu og negla eitthvað fullkomið í hverju skoti.
Gaman væri að fá að vita hvað þið gefið ykkar mönnum í jólagjöf en munum að albesta gjöfin er hinsvegar sú -að vera góð við karlinn sinn.
Hér eru nokkrar hugmyndir að gjöfum fyrir hann…
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.