Justin Timberlake er andlit nýs herrailms Givency sem heitir Play og á að höfða til karlmannsins sem vill leika sér (af því þeir eru svo fáir).
Í auglýsingunni er Justin hálfgerð Bond týpa í smóking, chillar í einkaþotu og ekur um á heitum sportbíl… svona nokkurskonar draumaheimur allra karlmanna. Ég er nokkuð viss um að ilmurinn sé flottur… en hann kemur á markað nú í haust. Hér má sjá upptöku af gerð auglýsingar fyrir Play.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.