Stundum hrífur “tískan” mig svo að ég klökkna: Að sjá þetta fullkomna collection frá tískuhúsinu Givenchy er eitt af þessum augnablikum sem minna mig á hvers vegna ég hrífst af hönnun og tísku.
Hönnun Riccardo Tisci er svo útpæld, svo nákvæm, simítrísk og fullkomin að ekki er hægt að segja annað en vááááá….
Riccardo sagðist innblásin af Fridu Kahlo og “þráhyggjum” hennar sem voru trúarbrögð, kynþokki og anatómía.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.