David Beckham hlaut það starf síðastliðinn miðvikudag að hanna undirfatalínu fyrir H&M sem á að koma í 1.800 verlsanir H&M útum allan heim 2.febrúar 2012. Skemmtileg tímasetning svona rétt fyrir valentínusardaginn svo þið sem viljið gera extra vel við ykkar heitt elskaða getið gefið honum undirföt eftir fótboltastjörnuna og fyrirsætuna Beckham!
Hann virðist vera mjög spenntur fyrir þessu öllu saman og segir á Facebook síðunni sinni:
“Ég get ekki beðið eftir að sýna viðskiptavinum H&M línuna -en ég er ekki viss um að mamma mín verði hamingjusöm að sjá auglýsingaskilti með mynd af mér á nærbuxunum aftur.”
Frú Victoria Beckham er nú tískuhönnuður með fatalína Victoria, sem hún skýrir væntanlega bara eftir sér sjálfri. En þú getur séð allt frá henni HÉR.
Viktoría Hinriksdóttir er yngsta pjattrófan. Fædd í ljónsmerkinu árið 1994. Hefur áhuga á öllu sem tengist hreyfingu og íþróttum, mataræði, tísku og öðru sem gerir lífið fallegra, betra og skemmtilegra.