Stórkostlega undarlegt rifrildi átti sér stað hjá pari í Massachusetts á föstudaginn en maðurinn var í kjölfarið handtekinn fyrir að slá unnustu sína í framan með gallabuxunum hennar sem hann var búin að bleyta upp úr wasabi sósu.
Parið hafið verið að rífast um sms sem hún hafði fengið frá karlkyns vini. Þau voru á leið heim frá körfuboltaleik þar sem þeirra lið hafði tapað. Parið reifst alla leið heim til hennar þar sem hún fór út úr bílnum.
Þá var sagan ekki öll. Fljótlega fékk hún hótun með sms-i þar sem unnustinn sagðist ætla að henda gallabuxunum hennar út á götu, en þær kostuðu tæplega 30.000 kr. Hún fór strax af stað og ók heim til hans.
Þegar þangað var komið sér hún unnustann, McGuinnes að nafni (22 ára), standandi á garðflötinni með gallabuxurnar sem hann var búin að bleyta upp úr wasabi sósu en eins og allir vita er hún logandi sterk.
Hann þvingaði rúðuna á bílnum hennar niður og náði af henni símanum í þeirri viðleitni að fá hana út úr bílnum. Í kjölfarið slengdi hann svo sósuvættum gallabuxunum í andlit hennar og hellti restinni af sósunni í bílinn.
Á meðan tókst henni að flýja og hann var handtekinn við heimili sitt.
Frá þessu segir í CapecodOnline.com
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.