Okkar elstu lesendur muna vafalaust eftir sjálfsvarnarnámskeiði sem við héldum í samstarfi við naglana hjá Mjölni.
Nú er annað námskeið að fara í gang og ekki annað að gera en að skrá sig enda verða konur að kunna að verja sig í vanda.
Námskeiðið verður haldið núna þriðjudaginn 15. maí og aftur á fimmtudaginn (uppstigningardag) 17. maí, frá kl. 21:00-23:00 báða dagana.
Verð er aðeins kr. 4.500 og skráning fer fram á mjolnir@mjolnir.is.
Hér er umsögn frá einni sem fór á námskeiðið okkar um árið:
“Ég fór ásamt systur minni og tveimur bróðurdætrum á sjálfsvarnarnámskeiðið fyrir konur sem Pjattrófurnar stóðu fyrir í samvinnu við Mjölni.
Við vissum í raun ekkert hvað við vorum að skrá okkur á annað en að á tveimur kvöldum ætluðum að læra nokkur vel valin trikk til að geta bjargað okkur úr klóm karlmanns ef yrði á okkur ráðist!
Við mættum tímanlega fyrra kvöldið og greiddum námskeiðsgjald. Svo hófst kennslan undir styrkri handleiðslu Jóns Viðars og Auðar, frábær bæði tvö, og með allt á hreinu.
Við kófsvitnuðum allar með tölu í miklum hasar, glímutökum og ýmsum góðum brögðum sem við æfðum aftur og aftur. Tónlistin sá til þess að halda okkur við efnið og reglulegar vatnspásur komu sér vel 😉
Taka tvö var svo tveim kvöldum síðar og þá mætti hópurinn aftur, glaðar konur með harðsperrur frá því síðast en staðráðnar í að læra tökin!
Við tók upprifjun þar sem frá var horfið og svo fleiri ný „brögð“ sem beita á þegar kona er komin í klípu. Allt sem ég lærði þessar tvær kvöldstundir veit ég að mun koma sér vel ef svo illa vill til í framtíðinni að á vegi mínum verði illa þenkjandi karl! 🙂
Við skemmtum okkur konunglega, hlógum mikið og erum nokkrar staðráðnar í því að mæta í haust og læra meira í bardagaíþróttum og glímu, ég komin á fimmtugsaldurinn og frænka mín að hefja sitt menntaskólanám.”
Námskeiðið er fyrir ALLAR konur og stelpur sem vilja vera öruggar með sig! Bestu þakkir fyrir fróðlegt og skemmtilegt námskeið Pjattrófur og Mjölnir.
Kennarar eru Jón Viðar og Auður Olga. Í myndbandinu hér að neðan má sjá umfjöllun Stöðvar 2 um námskeiðið frá 2010 en hér eru Margrét ‘pjattrófa’, Auður Olga og Jón Viðar í viðtali og sýnilkennslu. ATH bara að skrá sig á mjolnir@mjolnir.is!
Námskeiðið verður haldið í Mjölniskastalanum að Seljavegi 2.
[vimeo]http://vimeo.com/14845675[/vimeo]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.