Victoria Beckham hefur sent frá sér yfirlýsingu um að hún muni aldrei aftur koma fram sem kryddpía og ætlar sér aldrei að syngja aftur.
Victoriu gengur afar vel sem fatahönnuði en hún hannar allt frá töskum, sólgleraugum og fatnaði og það virðist vera alveg sama hvað hún sendir frá sér, það selst mjög vel og fræga fólkið í Hollywood dásamar fatnað hennar vinstri hægri.
Hinar Kryddpíurnar, þær Emma, Geri, Mel B og Mel C hafa ekki náð jafn langt í frægð og frama og eru ekki alveg á sama máli og Victoria. Þær vilja halda í forna frægð og ólmar halda áfram að syngja sem Spice Girls píurnar en gott betur …. því heyrst hefur að kvartetinn vilji taka þátt í raunveruleikaþætti þar sem leitin að fimmta meðlimnum færi fram.
Stelpunum finnst þær geta áorkað svo miklu miklu meira en þær hafa þegar gert og margir aðdáendur vilji sjá þær aftur saman á sviði.
Söngkonurnar neita þó öllum sögusögnum um að það sé raunveruleikaþáttur í bígerð en það væri örugglega frábær skemmtun fyrir aðdáendur sveitarinnar og aðra.
Victoria kom síðast fram með Kryddpíunum á Ólympíuleikunum og það mun hafa verið í síðasta sinn sem hún kom fram sem söngkona.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig