Með gríðalega flottan hóp hönnuða mun POP UP VERZLUN opna dyr sínar á kaffihúsinu Trúnó & skemmtistaðnum Barböru að Laugavegi 22 næstkomandi Laugardag.
Markaðurinn verður á báðum hæðum hússins, opnar klukkan 14:00 og lokar klukkan 19:00. Hönnuðir sem taka þátt að þessu sinni eru Mundi, Hlín Reykdal, IBA-The Indian In Me, Helicopter, Sonja Bent, Elva, Begga-Design, Dýrindi, Another Scorpion, Babette og Svava Halldórs.
Stjórnendur Trúnó og Barböru munu svo halda Designer Bingó eftir markaðinn eða klukkan 21:00 og þar geta þáttakendur unnið flíkur frá flottustu tískuhönnuðum Íslands. Trúnó er skemmtilegur staður fyrir alla, hýra og félaga, þar er boðið upp á góðan mat, góða drykki og ekki síst, góðar stundir. Því er um að gera að láta sjá sig hjá Pop Up Verzlun á Barböru og Trúnó á Laugardag, eignast eitthvað smart og lekkert og spila svo Bingó um kvöldið. Þetta er svona:
POPUP VERZLUN
TRÚNÓ / BARBARA – LAUGAVEGI 22
LAUGARDAGINN 2 JÚLÍ
KL: 14:00 – 19:00
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.