Margar vinkonur okkar eru hreint ólmar í gloss sem kallast BUXOM og er framleitt af Bare Minerals.
Hingað til hefur þetta góða gloss aðeins verið fáanlegt erlendis og margar hafa sent vini og ættingja í sérferðir í Sephora til að finna Dolly, Brandi og Tracy svo einhverjar séu nefndar.
Nú er hinsvegar hægt að fá þetta eftirsótta varagloss á Íslandi en í Lyf og heilsu er kominn upp veglegur standur með öllum vörunum frá Bare Minerals og meðal annars þetta góða gloss.
Ástæða þess að svo margar konur vilja næstum því aðeins BUXOM er til dæmis sú að það endist mjög vel á vörunum en inniheldur jafnframt örvandi efni sem gera varirnar svolítið þrýstnari og kyssulegri. Hver vill það ekki?
Ef þú átt leið í Kringluna er um að gera að kíkja í flottu snyrtivörudeildina í Lyf og heilsu og skoða litina og nöfnin sem eru kennd við burlesque dansara sem eru hver annari flottari eins og sjá má á myndinni.
Skemmtileg markaðssetning á góðri vöru en við ætlum að fjalla betur um Bare Minerals síðar.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.