Beiersdorf, fyrirtækið sem stendur að baki NIVEA og fleiri góðum merkjum hefur ákveðið að hætta með allar NIVEA förðunarvörur sínar á heimsvísu
Þetta er gert samhliða ákvörðun Beiersdorf að einbeita sér enn frekar að húðumönnun sem er grunnstoð NIVEA. Lituð dagkrem munu þó áfram verða framleidd ásamt breiðu úrvali af húðvörum en förðunarvörurnar sem margir voru svo hrifnir af munu fara af markaði.
Þá munu pjattrófurnar helst trega glossin frá Nivea sem eru meiriháttar góð miðað við verðlagninguna og við hvetjum þig til að kaupa ef þú skyldir rekast á þau.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.