Mathús, fjölskylduvænt og framsækið mathús með fjölbreyttan gæðamat fyrir alla fjölskylduna kvölds og morgna og Loksins Bar, með besta úrval landsins af bjór frá Borg brugghúsi ásamt miklu úrvali af víni og snöfsum, voru formlega opnuð með viðhöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni.
Það voru Sigurður Skagfjörð Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Lagardère og Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar sem klipptu á borða við opnun Mathúss og buðu í leiðinni fyrstu farþegunum, Parísarbúunum Ann Sophie og Harold, upp á frían morgunmat. Gunnhildur Vilbergsdóttir, markaðsstjóri Isavia klippti á borðann við opnunina á Loksins Bar á sama tíma.
Mikið er lagt upp úr gæðahráefni, fjölbreyttri matreiðslu, íslensku andrúmslofti og að gleðja bragðlaukana á Mathúsi, en ekki síður er lögð áhersla á að staðurinn gleðji einnig augað. Heildarútlitið er hannað af HAF Studio og Sigga Odds, innréttingarnar, sérsmíðaðar af JP BAK, eru sérhannaðar af ASK arkitektum, stólarnir og barstólarnir eru hannaðir af Erlu Sólveigu og lamparnir hannaðir af Dóru Hansen annars vegar og Jóni Helga Hólmgeirssyni og Þorleifi Gunnari Gíslasyni hins vegar.
Heildarútlit Loksins Bar er hannað af Karlssonwilker og HAF Studio, bekkir, lampar og allar innréttingar hannaðar hjá HAF Studio, stólar af Halldóri Hjálmarssyni og barstólar af Daníel Magnússyni sem hannaði meðal annars stólana fyrir 101 Hótel.
Með tilkomu þessara staða í Flugstöðinni fá farþegar á leið út úr landinu fyrsta flokks mat og drykki, fjölbreytt vöruframboð, ferska vöru og alþjóðaþekking matreiðslumanna og barþjóna nýtist til hins ítrasta. Íslensk hönnun nýtur sín sem aldrei fyrr á einum besta flugvelli Evrópu.
Mathús og Loksins Bar bjóða farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar velkomna í ævintýri fyrir bragðlaukana og augað í upphafi góðrar ferðar. Þetta verður eitthvað! Skál!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.