Reykjavík Fashion Festival (RFF) leitar nú að fyrirsætum til að taka þátt í RFF 2013 en prufur fara fram í höfuðstöðvum Fashion AcademyReykjavík við Ármúla 21.
Leitað er að stelpum, 174 cm og hærri, í góðu líkamlegu formi og með áhuga á tísku & fyrirsætustörfum. Áhugasamar þurfa að geta gengið á sýningarpöllum fyrir helstu hönnuði Íslands.
Að taka þátt í Reykjavik Fashion Festival gæti opnað ný tækifæri og möguleika til að komast á skrá hjá leiðandi fyrirsætuskrifstofum í tískuheiminum í dag. Það verða gönguæfingar í febrúar og mars fyrir þær fyrirsætur sem verða valdar til að taka þátt í hátiðinni. Reykjavík Fashion Festival verður haldið 14. til 16. mars 2013 og er stærsti tískuviðburður á Íslandi.
Fylgist með nýjustu fréttum, myndum og myndböndum á Facebook síðu RFF: www.facebook.com/reykjavik.fashion.festival – Frekari upplýsingar um Reykjavík Fashion Festival má finna á heimasíðu RFF
Prufurnar fara fram þriðjudaginn 29. janúar frá kl. 17 til 20 í Ármúla 21.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.