Á morgun, fimmtudaginn 16.apríl frá kl 19-21, vill Yves Saint Laurent á Íslandi bjóða þig velkomna í Hagkaup Kringlu til að kynnast einstökum nýjungum í Touche Éclat línunni.
Allir gestir fá þriggja daga prufusett (á meðan birgðir endast). Sýnikennsla verður í boði þar sem áhersla verður lögð á nýja Touche Éclat Blur Perfector og Blur Primer ásamt hinum ómissandi gullpenna!
Allar sem kaupa vörur frá Yves Saint Laurent í Hagkaup Kringlu, Smáralind og Holtagörðum þennan dag komast í pott og eiga möguleika á að vinna veglega gjöf frá YSL!
Léttar veitingar verða í boði fyrir gesti og gangandi.
Yves Saint Laurent kynning verður í Hagkaup Kringlu, Smáralind og Holtagörðum dagana 16.-22.apríl þar sem kaupauki fylgir tveimur eða fleiri keyptum vörum í merkinu.
Gullpenninn svokallaði, eða Touche Éclat hefur um árabil verið ein mest selda snyrtivaran á landinu enda ómissandi í snyrtibudduna hjá metnaðarfullum pjattrófum.
Hann lýsir og hylur í senn, er fullkominn til að draga fram það sem þú vilt gera meira áberandi og hylja hitt. Það er því til mikils að vinna að mæta í Hagkaup í Kringlunni á fimmtudagskvöld!
Sjáumst!
___________________________________________
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.