Vefmiðillinn Dlisted valdi Jón Gnarr sem Hot Slut Of The Day fyrir þáttöku sína í Gay Pride og stuðningi við Pussy Riot.
Vefurinn, sem bæði víðlesinn og gay-miðaður, tekur því fagnandi að borgarstjórinn skuli standa upp ekki aðeins fyrir mannréttindum homma og lesbía heldur einnig taka málstað þeirra í Pussy Riot.
Hot Slut of the Day er fastur liður á síðunni og misjafnt hver fær þennan vafasama titil hjá ritstjóra síðunnar en það er morgunljóst að ritstjórinn er alsæll með Gnarrinn og leggur til að allir eigi að flytja til Íslands og að heimurinn verði að eignast borgarstjóra eins og okkar.
Þess má líka geta að vinkona Jóns Gnarr og eiginkonu hans Jóku, hún Björk Guðmunds, leggur nú áherslu á að styðja við Pussy Riot stelpurnar þar sem hún er á tónleikaferð um þessar mundir. Við á Pjattinu erum líka sammála… og HÉR geturðu sent ákall Amnesty International um að sleppa stelpunum í Pussy Riot.
Áfram Jón Gnarr! Áfram Pussy Riot!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=yAlqN9aJIhg[/youtube]Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.