Það var aldeilis jólalegt hjá þeim í GK í gærkvöldi en eigendur verslunarinnar buðu gestum og gangandi að fagna með sér í tilefni þess að ár er liðið frá eigendaskiptum…
…Jólalegar veitingar voru á boðstólnum eins og konfekt, kakó og jólabjór frá Ölgerðinni, kósý! Svo var jólahappdrætti og jólatónlist í partíinu til þess að örugglega allir kæmust í fíling.
Ég mæli með því að kíkja til þeirra í búðina hvort sem þig vantar jóladress eða eitthvað fallegt í jólapakkann handa vinum og vandamönnum en verslunin er troðfull af fallegum flíkum, skóm og skarti!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.