[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=qOnLxCC_zFQ[/youtube]
Landi okkar, kvikmyndaframleiðandinn Svana Gísla, hefur verið tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir að framleiða tónleikamyndband með hjónunum Jay-Z og Beyonce Knowles.
Svana hefur búið í London í tæplega tuttugu ár en þar hefur hún starfað sem framleiðandi.
Svana hefur áður unnið með frægum tónlistarmönnum á borð við Rolling Stones og Bruce Springsteen. Tilnefningar til Grammy-verðlauna voru birtar um helgina og er Svana tilnefnd ásamt sænska leikstjóranum Jonasi Åkerlund fyrir tónleikamyndband Beyonce Knowles og Jay-Z sem tekið var upp í París í haust.
Inngangsorðin í þessu myndbandi eru tær snilld!
Hér er Svana til vinstri með Colleen Haynes – Áfram Ísland!
Fílarðu Pjatt.is? Sýndu okkur stuðning með því að smella á like ♥
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.