Birgitta Ósk Pétursdóttir heitir 19 ára íslensk stelpa sem fyrir stuttu hóf að stíga sín fyrstu skref í fyrirsætubransanum .
Hún skrifaði nýlega undir árs samning við Hollenska umboðskrifstofu, Fourteen models, og er einnig á skrá á skrifstofum í bæði Danmörku og Þýskalandi: “Ég er að fara á tvo fundi núna í Barcelona, myndartöku og hitti síðan eiganda Modelmanagement.com og hlakka mikið til”.
Ferill Birgittu hófst með því að hún tók þátt í Elite Model Look keppninni í fyrra og þetta hefur svo leitt hana áfram. Birgittu dreymir um að geta ferðast um heiminn við fyrirsætustörfin, fengið að kynnast nýju umhverfi, skemmtilegu fólki og auka reynsluna.
Um þessar mundir tekur hún þátt í lokaúrslitum fyrirsætukeppni á vegum vefritsins Not Just Fashion og berst um sigurinn við aðra fyrirsætu frá Kúbu.
“Ég sá keppnina auglýsta og ákvað að prufa að senda inn myndir en bjóst alls ekki við því að fá að taka þátt þar sem þetta er alþjóðleg keppni og margar gullfallegar stúlkur hafa reynt að komast að.”
Er til mikils að vinna?
“Já það myndi ég svo sannarlega segja. Vinningurinn er ferð til Cannes í nokkra daga þar sem tvö módel (strákur og stelpa) eyða nokkrum dögum í fallegri höll og fara svo í myndartöku fyrir blað. Auk þess hafa margar umboðsskrifstofur haft samband við mig meðan ég hef verið í keppninni”
Hvernig kemstu á toppinn?
Hvert ‘like’ telur en ég þarf að fá sem flest til að vinna keppnina. Núna langar mig að biðja sem flesta að smella á meðfylgjandi link og kjósa mig. Það er líka hægt að gefa votes í geggnum Google+. Smella bara fyrir neðan þar sem stendur Birgitta Petursdottir.
Sú vinnur sem fær mesta stuðninginn.
Smelltu hér til að styðja Birgittu: http://www.notjustfashion.net/eng/category/vote/
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.