Netið er bæði frábær og fáránlegur staður í senn. Þar fá allskonar gosar að tjá skoðanir sínar, sama hversu ruglingslegar þær eru eða uppfullar af þvælu.
Ég rakst á þessa áhugaverðu samantekt inni á kristinni spjallrás sem hýst er í Ameríku en hún er vægast sagt skemmtileg.
Hér tíundar presturinn og predikarinn Jim Osborne hversvegna Guð hatar Ísland. Hann byrjar á að segja að Ísland tilheyri Skandinavíu, sé staðsett í norður-Atlantshafi og að lítið gerist hérna. Þrátt fyrir það getum við ekki forðað okkur frá reiði drottins. Svo koma níu góðar ástæður þess að Guð hatar Ísland og fólkið sem hér býr. Þýtt orðrétt…
9 ÁSTÆÐUR ÞESS AÐ GUÐ HATAR ÍSLAND
- Þau trúa ekki á Guð. Flestir Íslendingar eru trúlausir eða dýrka víkingaguði. Þeir fáu sem trúa eru Lúterstrúar en það fólk fer hvort sem er til helvítis. Það er ekki ein einasta Babtistakirkja á öllu Íslandi!
- Guð lagði bölvun sína á landið með því að koma því fyrir á lélegum stað. Landið er að mestu þakið ís eins og nafnið ber með sér. Það er líka mjög mikil eldfjallavirkni í landinu enda stendur það ofan á Helvíti og er einskonar inngangur þangað inn.
- Guð refsaði Íslandi með því að gera þjóðina gjaldþrota. Þau stóðu sig eitt sinn vel efnahagslega en drottinn ákvað að refsa þeim fjárhagslega. Og lærðu þau af refsingunni? Nei.
- Frægasti Íslendingurinn er Björk, viðbjóðslegur kynblendingur sem klæðir sig fáránlega og stundar kynmök við svertingja (Zeph 1:8) og (Ezra 9:2). Hún er þjóðhetja í landinu.
- Þau kjósa sér konu sem forsætisráðherra þrátt fyrir að Biblían segi að konur eigi aldrei að stjórna karlmönnum! (Tilvitnun: 1st Timothy 2:12 )
- Þau eru aumingjar sem eru ekki með sinn eigin her og eru með ríkisstyrkt heilbrigðiskerfi. Draumur Obama með öðrum orðum.
- Íslendinga langar til að útrýma hefðbundnu fjölskylduformi og lögleiddu hjónabönd samkynhneigðra! Þau búa til lög sem gera grín að Guði.
- Íslendingar hygla galdramenn og nornir, þau dýrka Satan og stunda ritúöl þar sem tröll og önnur skrímsli fara að óskum þeirra. Á Íslandi er meira að segja heilt SAFN í kringum galdramenn og nornir!
- En jafnvel safn um galdra er ekki jafn móðgandi fyrir sannkristna menn og REÐURSAFNIÐ. Já! Íslendingar hafa byggt heilt safn til heiðurs typpum. Sjúka, kynóða heiðingjasamfélag!
Íslendingar verða að samþykkja Jesús Krist sem frelsara sinn. Ef ekki þá munu þau halda áfram að brenna í helvíti með öðrum þjóðum sem gera gys að Guði: Ástralíu, Englandi, Skotlandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Ungverjalandi, Rússlandi, Serbíu, Kína, Japan, Kóreu, Mexíkó, Kanada, Brasilíu, Argentínu, Chile, Spáni, Portúgal, Noregi, Svíþjóð, Úkraínu, Króatíu, Serbíu, Eþíópíu, Nígeríu, Sómalíu, Súdan, Suður-Afríku, Nýja- Sjálandi, Víetnam, Kambodíu, Guatemala, Alsír, Egyptalandi, Saudi Arabíu, Íran, Írak, Afganistan og fleiri löndum.
***
Verulega hress týpa svo ekki sé meira sagt. Þú getur smellt hér og lesið spjallþráðinn í heild sinni en hér er Facebook síða predikarans. Spurning um að drekkja honum í vinabeiðnum? 😉
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.