Þá erum við búnar að velja tvo þáttakendur til að vera með okkur í meikóver og þökkum öllum sem sýndu áhuga.
Það var auðvitað ekki auðvelt að velja úr hópi mörghundruð kvenna en á endanum fundum við þær Brynju og Huldu til að taka þátt í þessu með okkur enda fínustu kandídatar.
Talsverður aldursmunur er á dömunum: Brynja er 35 ára og Hulda 59 ára. Okkur finnst meiriháttar skemmtilegt að gera meikóver með konum á þessum aldri enda verður maður líklegast fastari í stílnum sínum eftir því sem árunum fjölgar.
Brynja og Hulda eru búnar að borða á Gló síðustu daga og njóta þess að finna kroppinn blómstra af öllum góða matnum en í dag fara þær í Blue Lagoon Spa og fá þar andlitsbað og húðgreiningu frá snyrtifræðingunum sem ætla að dekra við þær. Þær fá líka vörur sem henta þeirra húðgerð og lofa að nota þær samviskusamlega þar til við tökum loka myndirnar.
Við munum fylgjast með því sem Brynja og Hulda gera fram að myndatökunni og það verður gaman að sjá þær blómstra!
Framhald…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.