Leikkonan Mia Farrow sem var lengi gift Woody Allen á ekki sjö dagana sæla núna en bóðir hennar, John, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að misnota börn kynferðislega.
John Charles Villers-Farrow, 66 ára, er er sakaður um að hafa misnotað ótal mörg börn kynferðislega árum saman. Tveir menn hafa stigið fram og sagt frá þessu en þeir búa í Edgewater í Maryland fylki og var John nágranni þeirra til margra ára. Mennirnir segja John hafa misnotað sig frá 2000-2008.
Mia Farrow og Woody Allen ættleiddu á sínum tíma mörg börn. Eða alls ellefu. Fjögur áttu þau saman. Þau skildu svo þegar Mia fann “erótískar” ljósmyndir sem Woody hafði tekið af Soon Yi, stelpu sem hún ættleiddi. Soon hefur þá verið um 19 ára og Woody 56 ára. Málið fékk gríðarlega mikla athygli í fjölmiðlum. Þetta var árið 1991.
Síðar giftust þau Woody Allen og Soon Yi, en það var árið 1997. Þau hafa verið saman allar götur síðan og eiga tvær ættleiddar dætur frá Kína. Soon Yi Previn er sjötta eiginkona leikstjórans.
Hvað varðar mál bróður Miu Farrow þá er hann frændi allra sextán barna hennar og ekki hefur komið fram í fjölmiðlum hvort eða hvenær hann hefur átt í samskiptum við börn leikkonunnar en hann gaf sjálfan sig fram til lögreglu um miðjan þennan mánuð og er enn í haldi.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.