Ég fann myndband þar sem frönsk stelpa (heyrist mér á hreimnum) kennir okkur hvernig á að gera French Manicure heima.
Þetta virðist sannarlega ekki mikið mál. Það eina sem þarf að gera er að vera soldið lunkin með pensilinn og safna smá nöglum til að geta málað þetta hvíta.
Mæli með að þú spólir kannski stundum aðeins áfram í þessu myndbandi. Það er soldið eins og að horfa á golf eða snóker því hún sýnir okkur hvernig hver einasta nögl er lökkuð 😉
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.