Ég heyrði ansi sérstaka sögu á dögunum. Við vorum nokkrar stelpur að tala um kynlífsmál og þá segir ein okkur frá manni sem hún þekkir.
Hann er einhleypur. Hefur verið einn til margra ára og nær sér einhverra hluta vegna ekki í konu. Samt þokkalega myndarlegur og allt í lagi og líkt og flest fullorðið fólk hefur hann þörf fyrir kynlíf en stundar það bara með sjálfum sér.
Sjálfs er höndin hollust.
Hún getur þó orðið svolítið tilbreytingarsnauð til lengdar og því hefur hann brugðið á það ráð að lakka á sér neglurnar og skreyta fingurna með hringum og armböndum. Þetta svona örvar ímyndunaraflið hjá honum og lætur honum líða eins og hann sé með konu. Starir á höndina og segir “Já, koma svo Rósa… hraðar”…eða eitthvað annað?
Þetta er sannarlega svolítið furðulegt en í það minnsta er ekki hægt að segja að þetta sé ekki -safe sex. Nema hann flæki óvart hringana í forhúðinni eða….
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.