Það er líklegast ekkert í heiminum sem á minni séns á að komast í gegnum nálarauga fjölmiðlanna en líkamar hinna ríku og frægu dáðadísa í Hollywood.
Hvort sem það er eitt kíló til eða frá, breyttur háralitur, klæðnaður, fegrunaraðgerðir eða já hárvöxtur, þá getum við tryggt að það mun allt saman rata í slúðurpressuna fyrr eða síðar.
Hér er til dæmis áhugaverð úttekt á nokkrum frægum Hollywood stjörnum sem annaðhvort ‘gleymdu’ að raka sig, slepptu því af því þær langaði að hafa hár eða gáfu hreinlega bara s**t í ‘óskráðar reglur’ um að konur ‘eigi’ að raka.
Tyra Banks
Tyra er með lauflétta mottu eins og margar kynsystur okkar. Hér hefur hún gleymt að taka hana af… eða bara verið sama í þetta skiptið?
Paris Hilton
Paris Hilton er ein af þessum glamúrpíum sem við sjáum ekki fyrir okkur með mikið krikaloð. Hér er hún hinsvegar með dulítinn lubba. Örugglega ekki viljandi.
Monique
Leikkonan Monique er yfirleitt ekkert að stressa sig á því að vera með loðna fótleggi og það hefur verið tekið eftir því oftar en einu sinni að hún hefur ekki fyrir því að raka.
Maggie Gyldenhaal
Maggie Gyllenhaal hélt eflaust að hún væri bara ein í góðu tómi með vatnsglasið sitt og sítrónuna (eða G&T) en svo var ekki. Það er jú grannt fylgst með þessu góða fólki.
Juliette Lewis
Leik og söngkonan Juliette Lewis þykir mikill uppreisnarseggur. Hér undirstrikar hún það með sínum órökuðu krikum.
Julia Roberts
Ameríska draumadísin Julia Roberts þykir hinsvegar enginn pönkari, og ekki hippi heldur. Hér er hún hinsvegar loðnari en allar þessar að ofan og það á sjálfum rauða dreglinum. Kannski var þetta bara mini-feminísk uppreisn hjá henni? Aldrei að vita.
Jessica Alba
Mögulega er þetta viljandi hjá Jessicu? Hún teygir jú strenginn svolítið niður og sýnir flatan kviðinn. Það sést líka í heil þrjú hár þarna – og þau náðust á mynd!
Hilary Swank
Hilary Swank er með glæsilegustu leikkonum Hollywood borgar. Hún er alltaf í fantaformi og leikur yfirleitt góð hlutverk í bíómyndum. Þarna virðist hún vera með örfá hár í krikanum þar sem hún svona íðilfögur stillir sér upp fyrir ljósmyndara í einhverju góðu tískupartý. So?
Drew Barrymore
Drew Barrymore hefur löngum þótt villt en ekki stillt. Hér er hún á villtu hliðinni, með vænan brúsk í krika sem hún hikar ekki við að sýna um leið og hún brosir seiðandi brosi til ljósmyndarans. Hann hefur eflaust orðið alveg ringlaður greyið.
Britney Spears
Að lokum er það hún Britney okkar Spears en hún hefur endalaust verið fram og til baka í slúðurpressunni og fáar fengið jafn mikinn sjónauka á eigið útlit. Það er nú varla hægt að kalla þetta brúsk, bara smá spretta byrjuð að koma hjá dömunni þar sem hún spókar sig þarna í Hollywood mollunni, með sólgleraugu og í hlýrabol. Britney hefur oft þótt alþýðleg í útliti og stundum hefur hún þótt stressa sig full lítið á útlitinu miðað við stórstjörnu á hennar kaliberi.
Hvað finnst þér – Er þetta kannski bara töffaraskapur sem vitnar um sjálfsöryggi eða er þetta leti og subbó? Ræðum það á Facebook síðunni.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.