Sleep in the city heitir Belgískt fyrirtæki sem leigir út geðveikt flottar íbúðir, staðsettar í miðbæ Antwerpen.
Antwerpen er hreinlega frábær borg til að skella sér í verslunarferðir og á markaði. Verslunargöturnar eru tær snilld og veitinga-og skemmtistaðir brilljant.
Belgar eru vinalegir og ég hef alltaf skemmt mér frábærlega í Antwerpen með mínum vinkonum en hér eru flottar myndir af þessum góðum gististað þar í borg.
Myndirnar eru af íbúð nr 11.
Kíkið á vefsíðuna: http://www.sleepinthecity.be
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.