The beauty department er frábær síða með allskonar hugmyndir, allt frá hárgreiðslum, förðunum, góðum hugmyndum af útliti á stuttum tíma, naglalakki og fleira.
Síðan er vel sett upp og það er auðvelt að finna það sem maður er að leita að. Eigendur síðunnar þær Conrad, Kristin Ess og Amy Nadine búa oft til mjög góð og ýtarleg kennslumyndbönd.
Ég mæli hiklaust með að kíkja, maður sér strax hvað þær leggja mikla vinnu í síðuna, myndirnar og myndböndin, allt svo snyrtilegt, fallegt og aðgengilegt.
Hér er eitt myndband af The beauty department, það kennir að búa til fiskifléttu :
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=ZyZkowmdZv8&eurl[/youtube]