Þessi kokteill er bæði afar bragðgóður, hressandi og inniheldur líka góð næringarefni og vítamín.
Er hægt að biðja um eitthvað meira?!
Andoxun og Kristall með kókoshnetuvatni
- 3cl ííískaldur Smirnoff vodka
- 12 cl Kristall plús með kókosvatni
- 6cl eða dass af ísköldum Virkni Andoxun safa
Helltu fyrst Smirnoff og Virkni Andoxun í glasið, toppaðu upp með Kristal með kókoshnetuvatni og skreyttu með fallegum berjum.
Njóttu í botn með fæturna uppi á borði!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.