French 75 er dásamlegur, en vissulega frekar hættulegur kokteill, sökum þess hversu hátt áfengisinnihaldið er og hversu vel hann bragðast.
Og eins og með allt sem við neytum þá bragðast þessi drykkur betur því flottari og ferskari sem hráefnin eru. Smartast er að bera hann fram í háu kampavínsglasi sem hafa verið kæld í frystinum áður. Þessi drykkur rekur ættir sínar til hefðarkatta New York borgar en þú getur lesið meira HÉR og fundið upprunalega uppskrift. Eftirfarandi er hinsvegar krassandi blóðappelsínu útgáfa af þessum unaðslega drykk.
INNIHALD
- 1 og hálf-faldur Tanqueray gin (af því það er svo fullkomið í þennan drykk)
- safi úr einni lítilli blóðappelssínu (á stærð við sítrónu) annars hálfri
- safi úr 1/2 lítilli sítrónu
- 80 ml kampavín eða freyðivín
- klaki
LEIÐBEININGAR
Kældu kampavínsglas eða hátt glas í frysti. Taktu það svo út þegar það er vel kalt og settu klaka í helminginn. Helst mulinn. Fylltu kokteilhristara með klaka og bættu við gini, blóðappelsínu og sítrónusafa. Hristu vel.
Helltu í glösin og toppaðu með kampavíni. Skreyttu með sneið af blóðappelsínu eða smá berki.
Skál og góða helgi!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.