Föstudagskokteillinn er í anda Scarlett O’Hara, aðalpersónu kvikmyndarinnar Gone With the Wind eða Á Hverfanda Hveli, líkt og þýðing hljómaði þegar myndin kom út árið 1939.
Drykkurinn er einfaldur en frískandi og léttsætur, tilvalinn ef markmiðið er að drekka kokteil sem sprengir ekki kaloríuskalann.
- 60 ml Johnny Walker
- 150 ml trönuberjasafi
- Skvetta af lime-safa
- Handfylli af mulnum klaka
- Myntulauf og kirsuber til skrauts
AÐFERÐ
Setjið klakamulning í glasið. Hellið viský yfir og bætið svo við skvettu af lime-safa. Fyllið loks glasið með trönuberjasafanum. Skreytiðog berið fram.
Scarlett O’Hara var mikil pjattrófa og því vel við hæfi að föstudagskokteill dagsins sé í hennar nafni. Prófaðu þennan í kvöld. Þú sérð ekki eftir því.
Það er sérlega huggulegt að blanda sér einn Scarlett þegar verið er að púðra sig við snyrtiborðið, alveg eins og ekta Suðurríkjadama.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.