Nú þegar nálgast jólin fara margir að huga að uppskriftunum að smákökunum, matnum, eftirréttinum, en hvað með kokteilana?
Er ekki tilvalið að byrja jólaboðið á hressandi kokteil?!
Spicy Ginger Man
1 skot Vannilluvodki (35cl)
1 skot Heslihnetulíkjör
1/2 skot Karamellulíkjör
2 skot Engiferöl
1 Kanilstöng
Vökvinn allur hristist með ís, hellist svo í glas og skreytist með Kanilstöng.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.