Margaritan er hressandi Tequila drykkur frá Mexíkó sem hefur um áraraðir verið meðal vinsælustu kokteila heim og sá getur ekki kallað sig kokteilbarþjón sem ekki getur sett saman fyrir þig eina ljúffenga Grand Marnier Margaritu eða Cadillac Margaritu.
Hér er uppskriftin að þessum góða drykk. Ekki flókin…
- Einn og hálfur Tequila
- Hálfur Grand Mariner
- Safinn úr litlu lime
- Örlítið agave sýróp
Hristu rækilega saman í kokteilhristara með muldum ís. Bleyttu brúnina á glasi, eða krukku, eða hverju sem þú kýst að bera drykkinn fram í og smelltu salti á hringinn. Helltu svo drykknum beint í miðjuna og bættu klaka í glasið. Skreyttu með lime.
VARÚÐ
Rétt er að geta þess að áfengisinnihaldið í Grand Marnier er ekki lítið svo þú skalt fara varlega með þennan drykk. Gætir endað á hliðinni ef þú passar þig ekki. Þetta er jafn sterkt og tequila svo það er óþarfi að blanda sterkara eða setja meira Grand.
Grand Marnier og Tequila fara ótrúlega vel saman svo nú er bara um að gera að njóta. Skál!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.