Föstudagskokteillinn að þessu sinni er frábær vodkakokteill með bláberja- og basilíku sírópi.
INNIHALD
- 2 dl. bláberja-basilíku síróp*
- 1,5 dl. Smirnoff Red vodka
- 1,5 dl. nýkreistur sítrónusafi
- Sódavatn
- Handfylli af klaka
Hrærið saman öllu í kokteilhristara með klökum og blandið vel saman. Hellið um hálfu glasi af blöndunni í hátt glas og fyllið svo með sódavatni.
Bláberja-basilíku síróp (fyrir 2-3 glös)
INNIHALD
- 5 dl. vatn
- 2,5 dl. sykur
- Rifinn sítrónubörkur af einni sítrónu
- 350 gr. bláber
- 2 pakkar basilíku lauf
AÐFERÐ
Hrærið saman á pönnu undir miðlungshita öllu hráefninu, uns sykurinn hefur bráðnað. Látið blönduna sjóða, lækkið síðan undir og látið léttsjóða svo blandan þykkni, en það tekur um 15 mínútur. Síið blönduna yfir skál og kælið.
Bragðgóður og öðruvísi kokteill sem indælt er að njóta á vindasömu föstudagskvöldi nú eða laugardags síðdegi ef það viðrar vel.
Góða helgi!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.