Súperflottur rósmarín og vatnsmelónukokteill í sjarmerandi krús… Þessi drykkur er frábærlega ferskur og ljúffengur, góður allann ársins hring enda fallegur á að líta og skemmtilega borin fram.
Mælt er með því að bera kokteilinn fram í krukkum og hafa fullt af klaka með – ótrúlega ferskur og girnilegur!
INNIHALD:
- Gin að eigin vali
- Hrásykur
- 1. sítróna
- Vatnsmelóna
- Ferskt rósmarín
AÐFERÐ:
Sykur og bolli af vatni í lítinn pott ásamt rósmarín laufum. Hitaðu á lágum hita þar til sykurinn leysist upp og láttu bíða í amk klukkustund til að taka í sig bragðið.
Settu sítrónusafa í blenderinn og bættu út melónubitum í smá skömmtum og hrærðu inn á milli (til að allt verði mjúkt). Blandaðu svo rósmarín sýrópinu úr pottinum við, smátt og smátt þar til það er orðið eins sætt og þér finnst gott. Kannski einn bolla í senn.
Helltu í stóra könnu/krukku, bættu við glasi af köldu vatni, bættu við gini eftir smekk og fylltu svo upp með vatnsmelónublöndunni.
Hrærðu og berðu svo fram í flottum krukkum, skreytt með sítrónusneið og hálfri rósmaríngrein…

Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.