Ég rakst á þetta flotta myndband frá Dior sem sýnir okkur hversu fljótlegt það getur verið að gera fallega augnförðun í nokkrum einföldum skrefum…
…Það er Emily Weiss sem sýnir okkur réttu handtökin í myndbandinu en í því notar hún fallega pallettu frá Dior. Pallettan inniheldur þrjá liti sem ætlaðir eru sérstaklega í ‘smokey’ augnförðun. Í myndbandinu sýnir hún okkur hversu einfalt það er að framkalla þetta ‘smokey’ útlit og bendir okkur á að það þarf ekki alltaf að nota svartan augnskugga í ‘smokey’.
Einfalt!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=m936S5zgeh0&context=C3dec798ADOEgsToPDskIZx0fCWfIgvT7jmfw3n-qG[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.