Það er förðunarfræðingurinn og snillingurinn Pat McGrath sem á heiðurinn að þessum mjög svo áberandi og grafíska eyeliner sem mátti sjá á fyrirsætunum sem sýndu haust 2012 línu Lanvin…
…Eyelinerinn er þykkur, kolsvartur og blautur eins og blek.
Fyrir neðan augað mátti einnig sjá stutta svarta línu sem var staðsett fyrir miðju. Húðin var svo höfð eins slétt og fín og hún mögulega gerist.
Þá var ‘lúkkið’ toppað með fallegum ‘highlighter’ á nefi og fyrir ofan efri vör. Æði!!
Smelltu á myndirnar fyrir neðan til að skoða förðunina nánar. Flott ekki satt?
________________________________________________________________________________________
Myndir fengnar að láni frá STYLE.COM
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.