Tamang Phan er enginn byrjandi þegar kemur að förðun. Það er gjörsamlega ótrúlegt hvað manneskjan getur gert!
Vopnuð förðunarburstum og öllu meiköppi sem fyrir finnst tekst henni að breyta sér og hvern sem er! Með réttum skyggingum, linsum og öllu tilheyrandi getur hún verið Kim Kardashian, Angelina Jolie, Taylor Swift, Jack Sparrow, Mulan, Jessica Rabbit, Marilyn Monroe og fleiri og fleiri…
Ég er orðlaus.
Ef þú ferð á youtube og skrifar Tamang Phan getur þú fundið myndböndin við myndirnar og séð hvernig hún fer að þessu.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.