Í þessu ‘vídjói’ er það förðunarfræðingurinn breski Tanya Burr sem kennir þér að mála þig eins og Beyoncé í myndbandinu við lagið Countdown…
…Förðunin einkennist af mjög dramatískum kisu-eyeliner og löngum augnhárum. Punkturinn yfir i-ið er svo skærgulur augnskuggi í innri augnkrókana. Gaman að sjá gula litinn notaðan á augun! Svo er það bara gloss og aftur gloss.
Kíktu á myndbandið fyrir neðan til að sjá Tönju skapa þetta skemmtilega ‘lúkk’!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=_O_5xbzKpt8&feature=g-vrec&context=G2672ad0RVAAAAAAAABw[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.